Ég tékkaði á fyrirpartíi en það er því miður ekki möguleiki
á að halda það hér hjá mér... Þannig ég mun bara halda mig við
morgunpartíið.
Semsagt, morgunpartí, segjum bara klukkan
12, á Laufásvegi 17, næstefsta bjalla
(stendur pétur, sif, vala). Og þar sem ég meika ekki alveg að
skaffa mat fyrir allan bekkinn þá væri ágætt
ef allir kæmu með eitthvað að borða eða
drekka. Kannski reyna að skipta þessu aðeins á milli
okkar, einhverjir koma með brauð, bollur, kökur o.s.fr. og
einhverjir með djús eða gos... Ég skal búa til ávaxtabakka
Og ef
einhvern langar að koma með spil eða eitthvað álíka þá er það vel
þegið þar sem ég hef ekki hugmynd hvar öll spilin mín eru
niðurkomin. 
Allir að koma í náttfötum 
Svo hlýtur nú einhver að geta haldið fyrirpartí...
Sérstaklega ef þetta er bara okkar bekkur. Eru örugglega allir
búnir að spurja? 